Tekið er á móti umsóknum um styrkinn IOF-Servier Young Investigator Research Grant fyrir árið 2008 fram til 3. mars 2008. Upphæð styrksins er 40.000 evrur. Þessi styrkur hefur verið veittur annað hvert ár frá árinu 2000 til ungra vísindamanna sem skara fram úr í rannsóknum á beinþynningu á alþjóða vísu.
Fimm einstaklingar hafa fengið hafa úthlutun:
2006: Dr. Elise Feng-i Morgan.
2004: Prof. Hong-Wen Deng.
2002: Dr. Yunbo Duan.
2000: Dr. Freda Wynne og Dr. Luigi Gennari.
Styrknum verður úthlutað á alþjóðlegri ráðstefnu IOF World Congress on Osteoporosis sem haldin verður í Bangkok, á Tælandi í desember 2008. Þeir sem sækja um styrkinn verða að vera yngri en 40 ára. Nánar upplýsingar er að finna á vef alþjóða beinverndarsamtakanna IOF
Umsóknarfrestur er til 3. mars, 2008.