Alþjóða beinverndarsamtökin IOF bjóða upp á rannsóknarstyrk fyrir vísindamenn yngri en 40 ára, 2010 IOF-Servier Young Investigator Research Grant.
Um er að ræða styrk upp á 40.000 evrur sem Servier í samvinnu við IOF býður ungum vísindamönnum sem eru að vinna að rannsóknum á beinþynningu sem hafa alþjóðlega tilvísun.
Styrkurinn verður veittur á alþjóðlegri ráðstefnu , World Congress on Osteoporosis 2010, sem haldin verður í Flórens á Ítalíu 5. – 8. maí 2010.
Umsóknafrestur er til 1. febrúar 2010.
Nánari upplýsingar um styrkinn er að finna hér.