Alþjóðleg ráðstefna beinverndarfélaga innan IOF verður haldin í Beijing í Kína dagana 22. – 25. september n.k. Fulltrúar frá 194 beinverndarfélögum frá 92 löndum um heim allan munu taka þátt í ráðstefnunni. Beinvernd sendir tvo fulltrúa.
Dagskrá ráðstefnunnar er þétt og munu allir fulltrúar taka virkan þátt í svokölluðum smiðjum eða vinnuhópum auk þess sem boðið er upp á fyrirlestra. Nokkur beinverndarfélög kynna starfsemi sína, alþjóðlegt beinverndarprógram verður kynnt og viðurkenningar veittar fyrir gott beinverndarstarf.