Þetta er í sjötta sinn sem Beinvernd tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu beinverndarfélaganna en það er mikilvægt fyrir starf félagsins að læra af því sem önnur félög eru að gera og miðla af sinni reynslu. Tvisvar sinnum hefur Beinvernd unnið til viðurkenningar fyrir framsækni í beinverndarstarfi, í Lissabon árið 2002 og í Bangkok árið 2005.