• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 17/05/2025

Alþjóðlegur Beinverndardagur

by tfadmin / Laugardagur, 22 september 2012 / Published in Greinar / Pistlar

Alþjóðlegur beinverndardagur er haldinn 20. október ár hvert.  Á hverju ári er dagurinn helgaður sértæku efni sem tengist beinþynningu. Yfirskrift beinverndardagsins í ár er  KARLAR og BEINÞYNNING.  Beinvernd mun, í samstarfi við alþjóða beinverndarsamtökin IOF, vera með átak í tilefni dagsins til að auka vitund um beinþynningu meðal karla. Nýr bæklingur um karla og beinþynningu kemur út í auk fréttabréfs sem helgað er þessu málefni sérstaklega. Beinvernd bendir körlum á að það eru margir þættir sem geta haft áhrif ég beinin s.s. erfðaþættir, reykingar, óhófleg áfengisneysla, hreyfingarleysi, næring sem ekki inniheldur nægjanlegt kalk og D-vítamín, seinkaður kynþroski og aðrir sjúkdómar.  Auk þess getur notkun ákveðinna lyfja s.s. sykurstera einnig valdið beinþynningu.  Svarið spurningum í áhættuprófi um beinþynningu sem er að finna á vef Beinverndar, www.beinvernd.net og kannið hvort þið eruð í áhættuhópi!

 Beinþynning:

Hér á landi er talið að rekja megi um 1000-1200 brot hjá til beinþynningar á ári hverju. Algengustu brotin eru framhandleggsbrot, samfallsbrot í hrygg og mjaðmarbrot, sem eru alvarlegust. (Aðalsteinn Guðmundsson og Anna Björg Aradóttir, 2004).

Sjúkdómurinn er stundum nefndur “hinn þögli faraldur” vegna þess að einkenni hans koma oft ekki í ljós fyrr en við beinbrot. Brotatíðni er mismunandi eftir löndum hjá körlum og konum, en álagið og þjáningarnar sem brotin valda eru að aukast vegna þess að fólk lifir nú að jafnaði lengur en áður og þar af leiðandi  eru fleiri aldraðir í heiminum sem hafa tilhneigingu til að brotna (Ego Seeman, 2004). Beinbrot vegna beinþynningar eru kostnaðarsöm, bæði hvað varðar þjáningu þeirra sem fyrir þeim verða og vegna meðferðar og umönnunar

Tiltölulega auðvelt er að greina beinþynningu með svokölluðum beinþéttnimælum, sem er góður mælikvarði á brotahættu, líkt og blóðþrýstingur og blóðfitur segja fyrir um áhættuna á kransæðastíflu eða heilablóðfalli.  Fullkomnir beinþéttnimælar, svokallaðir DEXA- mælar, eru á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Landspítala-háskólasjúkrahúsi í Fossvogi, en hægt er að fara í “minni” mælingu sem gefur vísbendingu um beinhaginn, hjá Lyfju, Gigtarfélagi Íslands, Gigtsjúkdómadeild LHS og hjá Beinvernd.  Auk þess hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi yfir að ráða handarmæli sem einnig gefur vísbendingu um ástand beinanna  (Björn Guðbjörnsson, 2002 og 2004). Beinþynningu er hægt að meðhöndla með sértækum lyfjum, auk D-vítamíns og kalks. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að lyfjameðferð getur viðhaldið beinþéttni og jafnvel aukið beinmassann (Björn Guðbjörnsson, 2004).

Lífshættir og erfðaþættir ráða að miklu leyti þéttni og styrk beina.  Þess vegna er mikilvægt að forvarnarstarf sé öflugt og nauðsynlegt er að tryggja forvörnina alla ævi.  Þar skiptir hvað mestu máli reglubundin líkamleg hreyfing og mataræði sem inniheldur D-vítamín og kalk.

Heimildir:

Aðalsteinn Guðmundsson og Anna Björg Aradóttir (2004). Mjaðmarbrot alvarlegust – grein frá Landlæknisembættinu, www.beinvernd.net
Björn Guðbjörnsson (2002). Beinþéttnimælingar og gildi þeirra. Vörðuð leið til betri heilsu-afmælisrit Bæklunardeildar FSA (16-18).
Björn Guðbjörnsson (2004). Meðferðarúrræði gegn beinþynningu. Fréttabréf Beinverndar, 1.tbl. 2. árg. (4-5).
Seeman, E. 2004. Invest in your bones – Osteoporosis in Men-The silent epidemic strikes men too – skýrsla gefin út af IOF, alþjóða beinverndarsamtökunum í tilefni alþjóðlegs beinverndardags 20. október 2004.

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur