Alþjóðlegu beinverndarsamtökin IOF hafa ákveðið að þema beinverndardagsins 2010 verði heilbrigður hryggur.
Prófessor Harri Genant, sérfræðingur innan IOF, vinnur nú að skýrslu um samfallsbrot í hrygg og stefnt er að því að skýrslan verði gefin út á beinverndardaginn. Auk þess er verið að vinna staðreyndablað um samfallsbrot og ráðleggingar um líkamsstöðuæfingar.