• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 11/05/2025

Alþjóðlegur beinverndardagur – Stöndum upprétt og tölum fyrir beinheilsu!

by tfadmin / Miðvikudagur, 26 september 2007 / Published in Fréttir

Alþjóðlegur beinverndardagurÍ dag 20. október 2008 heldur Beinvernd upp á alþjóðlegan beinverndardag í 10. sinn. Að þessu sinni er minnt á nauðsyn þess að „tala fyrir beinheilsu“ og beina athygli að því að enn er þörf á breytingum í stefnumótun hvað varðar beinþynningu. Þessi áhersla er ekki aðeins „ákall um aðgerðir“ til stjórnvalda og stefnumótenda heilbrigðismála“ – heldur hvatning til fólks um að „standa upprétt“ og verða ekki fórnarlömb beinþynningar.

En hvað er beinþynning? Beinþynning er sjúkdómur í beinum sem rýrir vefi beinanna og minnkar massa þeirra og þéttni. Sjúkdómurinn veikir því beinin og eykur hættu á beinbrotum, sérstaklega í hrygg, mjöðm og framhandlegg.

Beinþynning er lýðheilsuvandi sem herjar á fólk um allan heim og er talið að þriðja hver kona og fimmti hver karl brotni af hennar völdum. Beinþynningarbrot eru nú þegar ein helsta orsök þjáninga, hömlunar og dauða hjá elstu kynslóðinni og kostnaður heilbrigðiskerfa vegna þessara brota er meiri en vegna flestra annarra bráðasjúkdóma. Vandinn vex í takt við fjölgun mannkyns og reikna má með að fjöldi brota tvöfaldist eða jafnvel þrefaldist á næstu áratugum vegna þess að öldruðum fjölgar.

Beinþynning hefur feikileg áhrif á einkalíf fólks og efnahag. Í Evrópu er hömlun af völdum beinþynningar meiri en vegna krabbameins ef frá er skilið lungnakrabbamein og sambærileg eða meiri en vegna margra langvinnra sjúkdóma sem ekki eru smitsjúkdómar.

Beinþynningarbrot leiða af sér verulegan óbeinan og falinn kostnað. Það má nefna tapaða framleiðni á vinnumarkaðinum og tímatap vegna umönnunar fjölskyldumeðlima sem eiga við hömlun að stríða vegna beinbrota.

Það er hægt að minnka hættu á beinþynningu og brotum af hennar völdum með ýmsu móti. Hornsteinar forvarna gegn beinþynningu eru reglubundin hreyfing, mataræði sem inniheldur kalk og D-vítamín, almennt hollir lífhættir og læknisskoðu til að tryggja að beinþynning greinist á fyrstu stigum. Þá getur fólk sem hefur greinst með beinþynningu fengið góða lyfjameðferð sem dregur marktækt úr hættunni á beinþynningarbrotum.

Stöndum upprétt og tölum fyrir beinheilsu. Beinvernd.

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur