Bæklingurinn er gefinn út í tilefni hins alþjóðlega beinverndardags sem haldinn er 20. október undir yfirskriftinni BEINLÍNIS HOLLT eða BONE APPETIT en þema beinverndardagsins í ár er matur og næring.
Í þessum nýja bæklingi er að finna gagnreyndar upplýsingar um næringu og bein og kemur bæklingurinn út í mörgum aðildarlöndum IOF á sama tíma. Þeir sem áhuga hafa á að fá bæklinginn geta haft samband við Beinvernd.
Lesið bæklinginn með því að smella hér (Pdf-skjal)