Árangursrík leið til að byggja upp og viðhalda beinmassa er að stunda íþróttir sem reyna kröftuglega á beinin með hjálp af þunga líkamans. Hér koma nokkur dæmi:
Ganga s.s. kraftganga, stafganga, fjallganga.
Skokk og hlaup
Dans
Lóðalyftingar og kraftlyftingar
Tennis og skvass
Boltaíþróttir s.s. blak, fótbolti, handbolti og körfubolti.
… listinn gæti verið lengri og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.