• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 11/05/2025

Beinþéttnimælir á ferð og flugi

by Beinvernd / Mánudagur, 11 apríl 2016 / Published in Fréttir

beinþéttnimælir pegasus

Fyrir nokkru síðan gáfu íslenskir kúabændur Beinvernd lítinn færanlegan beinþéttnimæli sem er hælmælir er byggir á hljóðbylgjutækni og mælir hælbeinið sem gefur vísbendingu um ástand beinanna. Þessi mælir er afar hentugur til að mæla beinþéttni og kanna hvort ástæða sé til nánari greiningar sem gerð er með stærri og nákvæmari beinþéttnimæli, svokölluðum DXA-mæli. Slíkir mælar eru til á Landspítalanum í Fossvogi, Sjúkrahúsinu á Akureyri og hjá Hjartavernd.
Eftir talsverðan undirbúning var ákveðið að mælirinn yrði lánaður á heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni í ákveðinn tíma í senn þannig að heilsugæslan gæti boðið upp á beinþéttnimælingar og fræðslu um beinþynningu og forvarnir. Nú er þetta mikilvæga verkefni að fara í gang og hefst það á vordögum. Mælirinn verður á hverjum stað í nokkrar vikur og það er von félagsins að landsmönnum líki vel að fá þessa þjónustu í heimabyggð. Það verður spennandi að fylgja þessu verkefni eftir á næstu vikum og mánuðum. Þessi gjöf frá íslenskum kúabændum mun efla til muna forvarnarstarf gegn beinþynningu á landsvísu því mikilvægt er að greina sjúkdóminn í tíma, áður en fyrsta brot verður.

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur