Dagana 27.-30. september sl. sóttu tveir fulltrúar frá Beinvernd alþjóðlega ráðstefnu beinverndarfélaga innan IOF ásamt 200 fulltrúum frá 60 löndum. Á ráðstefnunni gafst tækifæri til að skiptast á skoðunum, reynslu og þekkingu auk þess að fylgjast með því sem er að gerast á sviði beinverndar. Beinvernd vann til verðlauna í annað sinn og að þessu sinni fyrir verkefnið BEINÞYNNING KEMUR OKKUR ÖLLUM VIÐ!