Beinvernd hefur nú opnað síðu á Facebook. Það er von félagsins að síðan laði að sér félaga og stuðningmenn. Inn á síðuna verður sett inn efni úr starfi félagsins og leitast verður við að fræða landsmenn um beinþynningu og hvað er til ráða gegn henni. Einnig verður lögð áhersla á að koma með sértækar upplýsingar fyrir ákveðna hópa og hitta þannig beint í mark. Allir eru hvattir til að leggja sitt af mörkum með hugmyndum, fyrirspurnum og ábendingum.
Fyrir þá sem skráðir eru á Facebook er slóðin:
http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Beinvernd/98939258096