Beinvernd heimsótti Mosfellsbæ og bauð upp á beinþéttnimælingar og fræðslu í samstarfi við Félagsstarf aldraðra þar í bæ.
Tæplega 60 manns notuðu tækifærið og létu mæla í sér beinþéttnina og fengu fræðsluefni frá Beinvernd. Var starfsmanni Beinverndar vel tekið og fólk almennt áhugasamt um beinheilsu sína og hvað hægt er að gera til að viðhalda sterkum beinum.