Beinvernd hlaut 750.000 króna styrk úr Styrktarsjóði Baugs Group til verkefnisins Vertu á verði – minnkaðu áhættuna á brotum vegna beinþynningar. Úthlutað var úr sjóðnum mánudaginn 5. febrúar sl.
Þema næsta beinverndardags snýst um það að vera vel á verði, þekkja áhættuþætti beinþynningar til að draga úr áhættum á beinbrotum. Unnið verður að nýju og endurbættu fræðsluefni fyrir almenning.
Nánar er hægt að fræðast um Styrktarsjóð Baugs Group á heimasíðu fyrirtækisins.