Alþjóða beinverndarsamtökin IOF greina frá því á heimasíðu sinni að vísindatímaritið Calcified Tissue International sé nú formlega gefið út af samtökunum. Tímaritið mun styðja vel við tímaritið Osteoporosis International og mun áherslan vera á líffræðilegar- og tæknilegar rannsóknir á beinasjúkdómum.
Stuart H. Ralston og Roberto Cicitelli ritstýra mánaðarlegu ritrýndu blaði og er það gefið út hjá Springer forlaginu.
ISSN: 0171-967X (prent)
ISSN: 1432-0827 (rafrænt)
http://www.springer.com/life+sciences/biochemistry+&+biophysics/journal/223