Aðalfundur Beinverndar
Miðvikudagur, 14 nóvember 2018
Aðalfundur Beinverndar var haldinn mánudaginn 12. nóvember sl. Ný stjórn félagsins var kosin en hana skipa Sigrún Sunna Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur, sem jafnframt var kosin formaður, Tinna Eysteinsdóttir, PhD í næringarfræði og Guðrún Gestsdóttir, sjúkraþjálfari. Einnig voru Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og fráfarandi formaður og Halldóra Björnsdóttir, íþróttafræðingur, kosnar sem varamenn í stjórn. Á aðalfundinum voru
- Published in Fréttir
No Comments
Aðalfundur Beinverndar
Sunnudagur, 28 október 2018
Aðalfundur Beinverndar verður haldinn mánudaginn 12. nóvember kl. 17:00 í salnum á 6. hæð á Landakoti. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 4. Ákvörðun félagsgjalds. 5. Lagabreytingar, ef einhverjar eru. 6. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda 7. Önnur mál. Tillögur að lagabreytingum: 3. gr. Aðild og tekjuöflun. Aðilar að félaginu geta verið einstaklingar og félög. Fyrirtæki og stofnanir geta gerst styrktaraðilar. Einstaklingar, félög svo og fyrirtæki og
- Published in Fréttir
Lyfjamál varðandi beinþynningu
Þriðjudagur, 02 október 2018
Í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, 10. tbl.104 árg. 2018, er grein sem bendir á leiðir til að tryggja árangursríka meðferð við beinþynningu. Þar kemur fram að fjöldi rannsókna sýni umtalsverðan ávinning af markvissri meðferð til að koma í veg fyrir beinbrot vegna beinþynningar. Auk þess er greint frá því að fyrir liggja rannsóknir sem mæla með
- Published in Fréttir
Samstarfi slitið
Mánudagur, 05 febrúar 2018
Mjólkursamsalan sleit fyrir skömmu áralöngu samstarfi við Beinvernd. Það er mikið áfall fyrir svo lítið félag sem Beinvernd er, en MS og Samtök afurðastöðva í mjókuriðnaði hafa um árabil verið langstærsti og mikilvægasti styrktaraðili félagsins. Beinvernd og MS hafa átt árangursríka, farsæla samleið með sameiginlega hagsmuni og baráttumál beggja, mjólkina og bætta beinheilsu. Þessi ákvörðun
- Published in Fréttir
Hátíðarkveðja frá Beinvernd – Seasons Greetings from Beinvernd
Fimmtudagur, 21 desember 2017
Beinvernd óskar félagsmönnum sínum, samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla, farsældar og góðrar heilsu á nýju ári. Kærar þakkir fyrir góðar móttökur á 20 ára afmælisárinu. Beinvernd – the Icelandic Osteoporosis Society wishes all its members and cooperative partners a happy holiday and a new year with good health. Thank you for your good response
- Published in Fréttir