Alþjóðlegur beinverndardagur 20. október 2010
Mánudagur, 11 janúar 2010
Alþjóðlegu beinverndarsamtökin IOF hafa ákveðið að þema beinverndardagsins 2010 verði heilbrigður hryggur. Prófessor Harri Genant, sérfræðingur innan IOF, vinnur nú að skýrslu um samfallsbrot í hrygg og stefnt er að því að skýrslan verði gefin út á beinverndardaginn. Auk þess er verið að vinna staðreyndablað um samfallsbrot og ráðleggingar um líkamsstöðuæfingar.
- Published in Fréttir
No Comments
Ranghugmyndir um beinþynningu
Mánudagur, 11 janúar 2010
1. Ég er of ung(ur) til að hafa áhyggjur af beinþynningu. Beinþynning er öldrunarsjúkdómur sem kemur fram eftir fimmtugt. Þú ert ekki of ung(ur) fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir. Þær eru m.a. að borða holla fæðu sem felur í sér nóg af kalki, D-vítamíni og próteinum; reglubundna hreyfingu; forðast reykingar og óhóflega áfengisdrykkju. Beinmassinn sem þú byggir
- Published in Fréttir
Beinverndarátak í Vestmannaeyjum
Mánudagur, 11 janúar 2010
í byrjun maí voru hjúkrunarfræðingar í Vestmannaeyjum með beinverndarátak fyrir bæjarbúar og var því vel tekið. Hjúkrunarfræðingar fræddu sitt heimafólk um helstu forvarnir og góð ráð til að viðhalda sterkum beinum. Um 50 manns létu mæla í sér beinþéttnina en Beinvernd lánaði Eyjamönnum ómskoðunartæki. Flestir voru með sterk bein en nokkrum var vísað í nákvæmari
- Published in Fréttir
Stefnumót við „þriðja geirann“
Mánudagur, 11 janúar 2010
Stefnumótið er hugsað sem samráðsvettvangur þar sem fulltrúum félagasamtaka gefst tækifæri til að hitta ráðherra og starfsmenn ráðuneytisins, skiptast á skoðunum og varpa fram nýjum hugmyndum. Meginþemu og umræðuefni á þessu fyrsta stefnumóti ráðuneytisins við þriðja geirann verða lífsgæði og grunnþjónusta. Frjáls félagasamtök, eða þriðji geirinn eins og þau eru stundum nefnd, eru mikilvægur hluti
- Published in Fréttir
Vel heppnuð ráðstefna í Flórens
Mánudagur, 11 janúar 2010
IOF – ECCEO 2010 ráðstefnan sem haldin var í Flórens 5. – 8. maí sl. heppnaðist vel. Met þátttaka var eða um 5500 manns frá yfir 100 löndum. Evrópubúar voru fjölmennastir eða tæplega 74% þátttakenda og flestir þeirra voru frá Ítalíu eða um 600 manns. Rúmlega 8% komu frá Asíu og rúmlega 6% frá Norður
- Published in Fréttir