Kalkríkar fæðutegundir
Miðvikudagur, 26 september 2007
Á öllum aldursskeiðum stuðlar fjölbreytt og næringarík fæða að því að beinin verði heilbrigð og sterk. Hollar matarvenjur fela í sér að hitaeiningar séu nægar og að neytt sé fæðu úr öllum fæðuflokkum þannig að tryggt sé að prótein, kolvetni og fita séu í réttum hlutföllum auk nauðsynlegra vítamína og steinefna – þá sérstaklega D-vítamín og kalk.
- Published in Fréttir
No Comments
Nýr forseti alþjóða beinverndarsamtakanna IOF
Miðvikudagur, 26 september 2007
Alþjóða beinverndarsamtökin IOF hafa tilkynnt prófessor John A. Kanis sem nýjan forseta samtakanna. Prófessor John A. Kanis útskrifaðist sem læknir frá Edinborgarháskóla. Eftir að hafa stundað rannsóknir hjá Nuffield Orthopeaedic Centre fékk hann rannsóknastöðu við Oxfordháskóla. Hann tók síðar við stöðu í efnaskiptarannsóknum við Háskólann í Sheffield og gegnir nú stöðu þar sem prófessor emeritus.
- Published in Fréttir
Alþjóðlegur beinverndardagur – Stöndum upprétt og tölum fyrir beinheilsu!
Miðvikudagur, 26 september 2007
Í dag 20. október 2008 heldur Beinvernd upp á alþjóðlegan beinverndardag í 10. sinn. Að þessu sinni er minnt á nauðsyn þess að „tala fyrir beinheilsu“ og beina athygli að því að enn er þörf á breytingum í stefnumótun hvað varðar beinþynningu. Þessi áhersla er ekki aðeins „ákall um aðgerðir“ til stjórnvalda og stefnumótenda heilbrigðismála“
- Published in Fréttir
Hámarks beinþéttni
Miðvikudagur, 26 september 2007
Hámarks beinþéttni er mesti massi sem beinin geta náð. Á aldrinum 20 til 25 ára hafa beinin náð fullri lengd, þroska og þéttni. Sá aldur sem hámarks beinþéttni er náð er þó mismunandi milli beina í beinagrindinni og ákvarðast að mestu af erfðum. Aðrir þættir s.s. næring, líkamleg hreyfing og sjúkdómar hafa þó einnig áhrif.
- Published in Fréttir
Beinverndarfræðsla í Háskóla unga fólksins
Miðvikudagur, 26 september 2007
Ólafur G. Sæmundsson, næringarfræðingur og stjórnarmaður í Beinvernd, tók á móti áhugasömu ungu fólki í Háskóla ungafólksins sem haldinn var miðvikudaginn 13. júní sl. Að sögn Ólafs tókst fræðslan mjög vel. Farið var með nemendur á Barnaspítalann á röntgendeildina en fræðslan var í samstarfi við Félag íslenskra geislafræðinga. Þar fengu nemendur innsýn í þá vinnu
- Published in Fréttir