Alþjóðlegur Beinverndardagur
Laugardagur, 22 september 2012
Alþjóðlegur beinverndardagur er haldinn 20. október ár hvert. Á hverju ári er dagurinn helgaður sértæku efni sem tengist beinþynningu. Yfirskrift beinverndardagsins í ár er KARLAR og BEINÞYNNING. Beinvernd mun, í samstarfi við alþjóða beinverndarsamtökin IOF, vera með átak í tilefni dagsins til að auka vitund um beinþynningu meðal karla. Nýr bæklingur um karla og beinþynningu
- Published in Greinar / Pistlar
No Comments
Beinþynning – hinn þögli faraldur
Laugardagur, 22 september 2012
Beinþynning er sjúkdómur sem einkennist af því að beinmagn og beinþéttni minnkar, sem leiðir síðan til þess að beinin verða ekki eins sterk og ella. Afleiðingarnar eru aukin hætta á beinbrotum, sérstaklega hryggsúlubrotum , mjaðmarbrotum og framhandleggsbrotum. Fólk sem er með beinþynningu á háu stigi getur brotnað við venjulegar athafnir í daglegu lífi, við lítinn
- Published in Greinar / Pistlar, Halldóra Björnsdóttir
Verndum lífsgæðin – komum í veg fyrir fyrsta brot
Laugardagur, 22 september 2012
Þann 20. október er alþjóðlegur beinverndardagur og á þessum degi ár hvert halda beinverndarfélög innan Alþjóðlegu beinverndarsamtakanna IOF, sem eru 155 talsins frá 75 löndum, upp á daginn í því skyni að vekja athygli almennings og stjórnvalda á þeim mikla vágesti, beinþynningu. Í ár er yfirskriftin Lífsgæði- komum í veg fyrir fyrsta brot. Vágesturinn er
- Published in Greinar / Pistlar, Halldóra Björnsdóttir
D-vítamín
Laugardagur, 22 september 2012
Á að bæta D-vítamíni í fæðu hér á landi? D-vítamín stjórnar frásogi í görnum á kalki og fosfati úr fæðu. Án D-vítamíns frásogast einungis um það bil 10% af kalkmagninu í fæðunni. Hversu mikið við þurfum að neyta af kalki í fæðu er því verulega háð því hversu góður D-vítamínbúskapur líkamans er (1).
- Published in Greinar / Pistlar, Gunnar Sigurðsson
Helstu lyf gegn beinþynningu
Laugardagur, 22 september 2012
Evista (raloxifen): Evista tilheyrir nýjum flokki lyfja sem verka örvandi á östrogen viðtakann í sumum östrogen næmum vefjum en hemjandi í öðrum vefjum. Þannig hefur Evista örvandi áhrif á östrogen viðtakann í beinum á svipaðan hátt og östrogen (kvenhormónið) sjálft en hefur ekki önnur áhrif hormóna nema að það lækkar kólesteról í blóði með því
- Published in Greinar / Pistlar, Gunnar Sigurðsson