Félag íslenskra sjúkraþjálfara
Ert þú búin að skrá þig á daginn!!
Dagur sjúkraþjálfunar 29. febrúar 2008
Dagskrá og upplýsingar
Dagskráin fer fram í fundarsölum á Grand Hótel í Reykjavík frá kl. 12.30 til 16.40. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og engum ætti að leiðast þennan dag. Framkvæmdanefnd hvetur sjúkraþjálfara nær og fjær að mæta og eyða deginum með öðrum sjúkraþjálfurum.
Kynningabásar verða á staðnum þar sem fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu fyrir sjúkraþjálfurum og styðja að sama skapi við framkvæmd þessa dags. Uppfærð dagskrá er hér neðar.
Þátttökukostnaður er 4000 krónur fyrir félagsmenn FÍSÞ en 6000 krónur fyrir aðra, sé greitt fyrir 23. febrúar. Eftir þann tíma hækkar gjaldið í 4500 kr. fyrir félagsmenn og 6500 kr. fyrir aðra
Innifalið í verði er aðgangur að fyrirlestrum, kaffi í hléum og léttar veitingar.
Skráningin er einföld Tilkynnið þátttöku á netfangið [email protected] og skráið bæði nafn og vinnustað. Greiðið þátttökugjaldið síðan inn á reikning 111-26 510336 kt: 690372-0299 merkt nafni viðkomandi / 29.febrúar 2008. Sendið kvittun á [email protected]
Minnum á að fyrir hádegi verður haldin málstofa um klíniskar vinnuleiðbeiningar frá kl: 8.30 – 10.50. Þar mun Ingveldur Ingvarsdóttir sjúkraþjálfari halda erindi um útgefnar leiðbeiningar á vegum Landlæknisembættisins, skilgreiningar, notagildi, aðferðarfræði og hvernig og hvar má nálgast þær. Því næst mun Philip van der Wees sem er hollenskur sjúkraþjálfari halda erindi um klíniskar vinnuleiðbeiningar í sjúkraþjálfun en hann er einn þeirra sem hefur leitt vinnu á vegum Evrópudeildar WCPT í þeim efnum.
Klukkan 11.00 hefst síðan aðalfundur FÍSÞ og stendur hann í tæpan einn og hálfan tíma eða þar til dagskrá Dags sjúkraþjálfunar hefst kl 12.30.
|
Setning
Opnunarinnblástur: Sigurður Guðmundsson, landlæknir ________________________________________________________________ Aðalfyrirlesari: Diana Lee „Show me the patient“ |
||||
Salur 1 – Gullteigur A | Salur 2- Gullteigur B | Salur 3 – Hvammur | |||
|
María Ragnarsdóttir, sjúkraþjálfari
Nýtt tæki sem mælir hreyfingar milli einstakra hryggjarliða |
Þóra Andrésardóttir, sjúkraþjálfari
Mynstur öndunarhreyfinga hjá sjúklingum með nýgreint slag |
Arnór Víkingsson, læknir
Vefjagigt – margslungin og stundum óskiljanleg.Hvað fyrirbæri er það og hvað ekki ? |
||
|
Einar Einarsson,
sjúkraþjálfari Taktu rannsóknarstofuna undir arminn. -Einföld göngugreining á 10 mín -Er hægt að skima fyrir áhættunni á hnévandamálum? -Dæmi um greiningu á öxl og mjóbaki |
Hanna Björg Marteinsdóttir, sjúkraþjálfari
Hreyfifærni 4ra-10 mánaða barna á suðvesturhorni Íslands |
Sigrún Baldursdóttir, sjúkraþjálfari
Er hægt að hjálpa vefjagigtar- og síþreytusjúklingum? Hvað segja vísindin – hvað segir reynslan? |
||
|
KAFFHLÉ OG KYNNINGARBÁSAR | ||||
|
Arna Harðardóttir, sjúkraþjálfari
Stöðluð Skráning í sjúkraþjálfun |
Guðrún Káradóttir, sjúkraþjálfari
Viðhorf barna til hreyfingar |
Guðný Lilja Oddsdóttir, sjúkraþjálfari
Jafnvægistruflanir eftir hálshnykk við bílákeyrslur |
||
|
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, heilsuhagfræðingur
Hagfræði: Skiptir hún sjúkraþjálfara máli? |
Bergljót Borg,
sjúkraþjálfari Að rækta þrótt til þátttöku |
Gísli Sigurðsson,
sjúkraþjálfari Virkni sternocleidomastoid vöðva í tveimur ólíkum þungaberandi stöðum. |
||
|
Lokaerindi: Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir og lektor við verkfræðideild HÍ
„Að hitta sjálfan sig fyrir“ |
||||
|
Fjör og léttar veitingar |
Sjáumst sem flest
Framkvæmdanefnd Dags sjúkraþjálfunar 2008.