Félagið Osteoporosis Prevention and Age Concern í Kenýa hefur fengið aðild að alþjóða beinverndarsamtökunum IOF. Um er að ræða tímabundna aðild, associate membership, til tveggja ára en þá getur félagið sótt um fulla aðild.
Þrjú félög hafa nú fengið fulla félagsaðild að IOF en það eru félögin:
National Association of Osteoporosis – Georgia
Bulgarian Medical Society of Osteoporosis & Osteoarthritis
FENAPCO – Brazil
Nú eru félög innan CNS nefndar IOF orðin 195 í 93 löndum.