Í tilefni af 10 ára afmæli Beinverndar er fréttabréfið afar veglegt. Meðal efnis í blaðinu eru greinar um byltur og brot hjá öldruðum, mikilvægi D-vítamíns fyrir beinin og klínískar leiðbeiningar til þess að koma í veg fyrir byltur. Auk þess er litið er yfir farinn veg síðastliðinna 10 ára.
Þeir sem áhuga hafa á að nálgast fréttabréfið geta haft samband við Beinvernd á netfangið [email protected] Einnig er hægt að nálgast Fréttabréfið af vefnum.