Þetta er 2.tbl. 4.árgangur. Meðal efnis í fréttabréfinu (Pdf-skjal) eru góðar upplýsingar um þau næringarefni sem beinunum eru nauðsynleg til að halda styrk sínum. Einnig er greint frá samstarfi Beinverndar og matreiðslumeistara en svo skemmtilega vill til að alþjóðlegur beinverndardagur og alþjóðlegur dagur matreiðslumeistara er 20. október. Að þessu sinni er þema beinverndardagsins matur og næring og því tóku þessir aðilar sig saman og ætla að halda upp á daginn saman.