Fyrsta tölublað, fyrsta fréttabréfs Beinverndar hefur litið dagsins ljós. Stefnt er að því að út komi tvö fréttabréf árlega. Dr. Björn Guðbjörnsson afhenti Ingibjörgu Pálmadóttur fyrsta eintakið af fréttabréfinu á alþjóðlega beinverndardeginum þann 20. október sl.
Öllum þingkonum landsins var boðið til morgunverðarfundar á beinverndardaginn til að fræðast um beinþynningu og hvaða áhrif hún hefur á lífsgæði.