• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 20/05/2025

Getur kæfisvefn aukið hættu á beinþynningu?

by Beinvernd / Mánudagur, 02 mars 2015 / Published in Fréttir

Kæfisvefn (obstructive sleep apnea, OSA) er algengt  vandamál tengt öndun í svefni og benda rannsóknir á  að tengsl séu milli þess og aukinnar hættu á beinþynningu og óheilnæmum efnaskiptum í beinum1,2. Kæfisvefn hefur einnig verið tengdur við aðra sjúkdóma s.s. offitu, of háan blóðþrýsting, hjartasjúkdóma og þunglyndi og þess vegna er mikilvægt að greina vandann  og meðhöndla.

 

Hvað er kæfisvefn (OSA)?

Kæfisvefn einkennist af tíðum, stuttum og grunnum  öndunarlotum (jafnvel öndunarstoppi) í svefni. Súrefnisskorturinn sem verður vegna þessa getur haft slæm áhrif á líffærakerfin, þ.m.t. beinin, sem getur leitt til þess að beinin verða veikari en ella sem veldur síðan aukinni hættu á beinþynningu. Þótt engar vísindalegar rannsóknir séu til sem sanna að kæfisvefn valdi beinþynningu, þá hafa rannsóknir Dr. Kai-Jen Tien sem gerðar voru í Taiwan sýnt fram á að fólk sem þjáist af kæfisvefni er 2,7 sinnum líklegra til að fá beinþynningu1. Prófessor Tien segir:

 

„Eftir því sem fleira fólk greinist með kæfisvefn um allan heim (…) verðum við að gefa meiri gaum að tengslum kæfisvefns og beinheilsu svo við getum bent á leiðir til að koma í veg fyrir beinþynningu.“

 

Þekkt einkenni kæfisvefns eru:

  • Háar hrotur
  • Höfuðverkur (sérstaklega á morgnana)
  • Eirðarleysi eða pirringur að næturlagi
  • Svefnhöfgi á daginn

 

Hvernig er hægt að meðhöndla kæfisvefn?

Kæfisvefn er meðhöndlaður með breytingum á lífsstíl, munnstykkjum, tækjum sem auðvelda öndun og skurðaðgerðum. Algengasta meðferðin fyrir fullorðna sem þjást af alvarlegum kæfisvefni er sú að nota tæki sem viðheldur stöðugum, jákvæðum þrýstingi í öndunarveginum (continuous positive airway pressure CPAP) 3. Tækið eykur loftþrýsting í hálsinum þannig að öndunarvegurinn fellur ekki saman við innöndun,  auk þess þarf viðkomandi að sofa með ákveðna grímu eða maska sem passar yfir munn og nef eða bara yfir nefið.

 

Lífstílsbreytingar sem skipta mestu eru:

  • Að léttast (þ.e.a.s. ef viðkomandi er of þungur)
  • Líkamsþjálfun sem felst í þungaberandi æfingum
  • Að sofa á hlið fremur en á bakinu
  • Forðast alkóhól, róandi lyf og vöðvaslakandi lyf
  • Minnka neyslu á sætindum og sætum drykkjum

 

Þessar breytingar eru mjög jákvæðar, ekki einungis sem meðferð vegna kæfisvefns heldur einnig sem daglegar venjur til að viðhalda líkamlegri og andlegri heilsu og minnka hættu á beinþynningu.

crap

 

Heimildir: Grein fengin frá alþjóða beinverndarsamtökunum IOF.

  1. http://www.inquisitr.com/1219889/sleep-apnea-symptoms-causes-higher-risk-of-osteoporosis-claims-study/
  2. Tomiyama, H., Okazaki, R., Inoue, D. et al. Link between obstructive sleep apnea and increased bone resorption in men, Osteoporosis Int. (2007) 19: 1185-1192
  3. http://www.nhlbi.nih.gov/health/health-topics/topics/sleepapnea
Tagged under: beinþynning, health, heilsa, osteoporosis, sleep, svefn

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur