Þátttakendur á stafgöngudeginum þann 29. september sl., sem gengu sér til ánægju og til að styrkja beinin, voru rúmlega 500 á 22 stöðum víðs vegar að af landinu.
Stjórn Beinverndar þakkar ÍSÍ og öllum þeim frábæru leiðbeinendum sem lögðu sitt af mörkum til að gera daginn eftirminnilegan og kynna stafgöngu sem góða hreyfingu til að styrkja beinin og til að viðhalda sterkum beinum.