• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 15/05/2025

Grípum brotin

by Beinvernd / Miðvikudagur, 17 maí 2017 / Published in Fréttir

Grípum brotin er heiti á verkefni sem búið er að setja á stofn á Landspítalanum. Verkefnið snýr að því að samþætta þjónustu með það að markmiði  að koma í veg fyrir annað brot hjá þeim sem hafa brotnað og eru með beinþynningu. Lögð er áhersla á að bæta samskipti á milli meðferðaraðila með því að búa til meðferðarferli sem lokar meðferðargapinu sem of oft vill myndast. Þessi nýja þjónusta er unnin út frá ákveðinni aðferðafræði Fraction Liason Service FLS sem er gagnreynd og hefur sýnt mikinn árangur. Rökin fyrir þessari aðferð eru þríþætt:
Hún minnkar líkur á öðru broti.
Dánartíðni lækkar.
Dregur úr kostnaði þegar til lengri tíma er litið.

Þetta er alheims eða alþjóðleg herferð sem miðar að þvi að koma á heilstæðri þjónustu til varnar öðru broti. Unnið er eftir ákveðnum ferlum sem gefur ramma utan um verkefnið og síðan er ákveðið mat sem á sér stað um árangur.

Verkefnið er komið af stað á Landspítalanum. Það er búið að ráða þjónustustjóra, verkferlarnir eru klárir og búið er að sækja um “stjörnu” en sjúkrastofnanir sem sinna brotum geta sótt um stjörnu hjá alþjóða beinverndarsamtökunum IOF. Ísland er komið með eina bláa stjörnu sem þýðir að Landspítalinn er kominn af stað með þróunarvinnu eftir þessu alþjóðlega fyrirkomulagi. Vonandi verða þær síðan brons, silfur og gull.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá að Ísland er komið með eina bláa stjörnu.

http://www.capture-the-fracture.org/map-of-best-practice

 

Tagged under: beinbrot, beinvernd, beinþynning, FLS, fractures, osteoporosis

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur