Stórsýningin Heilsa, húð og hár var haldin laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. maí s.l. í Vetrargarðinum í Smáralind. Sýningin spannaði allt heilsusviðið og var afar fjölbreytt og lifandi. Beinvernd tók þátt í sýningunni, dreifði fræðsluefni, fréttaefni og áhættuprófi um beinþynningu.
Einkennisstef sýningarinnar var – Heilsan er okkar dýrmætasta eign!