• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 20/05/2025

Heilsuvika í Mosfellsbæ 3. – 8. maí

by tfadmin / Mánudagur, 11 janúar 2010 / Published in Fréttir

Heilsuvika í Mosfellsbæ er tilvalið tækifæri til þess að setja af stað eitt allsherjar fjölskylduátak þar sem allir taka höndum saman í eina viku og neyta hollrar fæðu og stunda útivist og hreyfingu og fara þannig saman heilbrigð inn í sumarið.

Dagskrá:

Fellaþrenna, allir geta farið á eitt, tvo eða þrjú fell: Helgafell, Úlfarsfell og Reykjafell og sótt þar miða sem er í boxi á appelsínuglulri veifu, skráð nafn sitt á miðann og skilað í íþróttahúsið að Varmá. Úrdráttarverðlaun – þrír heppnir fellafarar fá vinning.

Brennókeppni, fimmtudaginn 6. maí kl. 20;:00 á sparkvelli Lágafellsskóla.

Heilsutengd skemmtidagskrá verður í Íþróttamiðstöðinni að Varmá milli 12:00-14:00.
Boðið verður upp á fjölskyldu- og skemmtihlaup fyrir unga sem aldna.

Tímasetning á hlaupi:
12:00 Leikskólahlaup, einn hringur á íþróttavellinum. Fígúrur frá Leikfélagi Mosfellssveitar leiða hlaupið. Að hlaupinu loknu fá öll börn verðlaunapening.
12:30 Ræst af stað frá íþróttavellinu í 3 km og 5 km hlaup/göngu.

Beinvernd:
Fulltrúi frá Beinvernd, landssamtaka áhugafólks um beinþynningu, mælir beinþéttni í þeim sem þess óska, en mæling á beinþéttni er mikilvægur þáttur eða vísbending sem segir til um hættuna á því að brotna af völdum beinþynningar.

Himnesk hollusta:
Heilsugúrúinn Sólveig Eiríksdóttir, Solla, sem rekur heilsufyrirtækið Himnesk hollusta, verður með ýmiskonar fróðleik um hollustu og heilbrigt mataræið og miðlar af þekkingu sinni í matreiðslu og neyslu grænmetisfæðis.

Ráðgjöf um mataræði:
Guðrún Adólfsdóttir matvælafræðingur frá Sýni, verður á staðnum milli kl. 12:00-14:00 og svarar öllum spurningum er tengjast næringu – munið allar spurningar eru leyfðar.

Blóðþrýstingmælingar og hæðarmælingar:
Hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni verður á staðnum og býður upp á blóðþrýstingsmælingar fyrir þá sem þess óska og hæðarmælingar og fleira skemmtilegt fyrir börnin.

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur