Innihald:
Múslí:
5 dl tröllahafrar
1 dl hörfræ
1 dl saxaðar kasjúhnetur
1 dl pekanhnetur
1 dl sesamfræ
1 dl eplasafi
1 dl kókosolía
1 msk hunang
smávegis af salti
trönuber
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C.
Blandið öllum hráefnum saman í skál og hrærið.
Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og dreifið múslíinu á plötuna.
Bakið í u.þ.b. 30 mínútur eða lengur. Fylgist vel með og hrærið nokkrum sinnum í blöndunni meðan á bökunartíma stendur.
Kælið vel áður en þið berið fram. Bætið t.d. þurrkuðum berjum eða kókosflögum við múslíið þegar það kemur út úr ofninum.
Berið fram með grískri jógúrt.
Höfundur: Eva Laufey Hermannsdóttir