• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 11/05/2025

Hvað hentar börnum að best að drekka?

by tfadmin / Mánudagur, 11 janúar 2010 / Published in Fréttir

Börn og ungmenni á Íslandi drekka of mikið af sykruðum gos- og svaladrykkjum. Níu ára börn drekka að meðaltali 2,5 lítra af gos- og svaladrykkjum á viku og 15 ára börn tæplega 4 lítra á viku, samkvæmt rannsókn Ingu Þórsdóttur og félaga hjá Rannsóknarstofu í næringarfræði á Landspítalanum.

Tíðni ofþyngdar og offitu meðal barna og unglinga hefur aukist á undanförnum árum auk, þess sem glerungseyðing tanna er vaxandi vandi, samkvæmt niðurstöðum Munnís-rannsóknar. Mikil neysla gosdrykkja og annarra svaladrykkja, að meðtöldum íþrótta- og orkudrykkjum og jafnvel safa, hefur verið tengt við þetta. Því er mikilvægt að foreldrar, og aðrir fullorðnir, staldri við og hugleiði hvað hentar best að gefa börnum að drekka.

Vatn er langbesti svaladrykkurinn fyrir börn

Kalt vatn hentar börnum best til að svala þorsta. Kennum börnunum að drekka vatn við sem flest tækifæri. Aðgengi skiptir hér megin máli. Reynum að hafa það sem reglu að auðvelt sé fyrir börnin að fá sér vatn, hvort sem er með máltíðum eða á milli máltíða. Til viðbótar við kranavatnið er sykurlaust kolsýrt vatn án ávaxtasýru (E330) góður valkostur.

 Tveir til þrír skammtar af mjólk eða mjólkurvörum á dag

Fullorðnum og börnum frá eins árs aldri er ráðlagt að neyta tveggja glasa, diska eða dósa af mjólk eða mjólkurmat á dag eða þess sem samsvarar 500 ml yfir daginn. Best er að velja fitulitlar og lítið sykraðar vörur nema fyrir börn tveggja ára og yngri sem þurfa heldur fitumeiri vörur. Ostur getur komið í stað mjólkurvara að hluta til.

Hreinn ávaxtasafi ekki nauðsynlegur hluti af hollu mataræði

Fullorðnum og börnum er ráðlagt að borða 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag. Eitt glas af hreinum ávaxtasafa getur komið í staðinn fyrir einn skammt af ávöxtum á dag. Ekki er ráðlagt að börn drekki meira en sem svarar einu glasi á dag og yngri börn ættu aðeins að fá lítið glas. Hreinn ávaxtasafi er þó ekki nauðsynlegur hluti af hollu mataræði en er þó betri kostur en gos- og svaladrykkir. 

Gos- og svaladrykkir einungis til hátíðabrigða

Gos- og svaladrykkir eru óþarfi fyrir börn og veita einungis tómar hitaeiningar, því í sykruðum gos- og svaladrykkjum eru margar hitaeiningar í formi viðbætts sykurs en nær engin næringarefni. Mikil sykurneysla í formi gos- og svaladrykkja getur aukið líkur á ofþyngd og offitu meðal barna auk þess sem sykurinn skemmir tennurnar. Gos- og svaladrykkir innihalda auk þess ávaxtasýrur og rotvarnarsýrur sem geta leyst upp glerung tannanna. Að drekka gos- og svaladrykki, að meðtöldum íþrótta- og orkudrykkjum, oftar en þrisvar sinnum í viku eykur hættu á glerungseyðingu.

Íþrótta- og orkudrykkir henta börnum ekki

Ástæðulaust er að gefa börnum íþróttadrykki, jafnvel þótt þau stundi íþróttir daglega. Mikilvægt er að drekka vatn fyrir æfingu, meðan á henni stendur og á eftir, einnig að borða vel nokkru fyrir æfingu og eftir æfingu.

Orkudrykkir innihalda örvandi efni, m.a. koffín og henta því börnum alls ekki. Slíkir drykkir geta haft ýmis óæskileg áhrif sem börn eru sérlega viðkvæm fyrir. Því er æskilegt að venja ung börn við að drekka vatn og mjólk sem oftast og ef til vill stöku sinnum hreinan safa.

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur