• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 20/05/2025

Kalk- og D-vítamín fyrir aldraða

by tfadmin / Þriðjudagur, 06 janúar 2009 / Published in Fréttir

Með auknum aldri eykst hættan á kalk- og D-vítamínskorti. Þá verða breytingar á líkamsstarfsseminni sem geta valdið því að beinin missa of mikið af kalki og þar með eykst hætta á beinþynningu.

Með auknum aldri dregur úr eftirfarandi:

  • neysu á kalki, sem tengist yfirleitt minni matarlyst, veikindum, auk ýmissa félagslegra og efnahagslegra þátta.
  • frásogi kalks frá meltingarvegi, sérstaklega ef D-vítamín styrkur er lágur.
  • hæfni fruma í meltingarvegi til að þess að aðlagast minni neyslu á kalki.
  • útiveru hjá þeim, sem ekki eru rólfærir, annað hvort heima eða á stofnunum, en húðin myndar D-vítamín fyrir tilstilli sólarljóss.
  • hæfni húðarinnar til þess að mynda D-vítamín.
  • skilvirkni nýrna til að geyma kalk, sem veldur auknu kalktapi með þvagi.
  • hæfni  nýrnanna til að umbreyta D-vítamíni á það form sem nýtist líkamanum, 1,25-dihydroxyvitamin D .

 

Með auknum aldri dregur úr hæfni til þess að soga kalk úr fæðunni. Aldraðir, sérstaklega þeir sem eru brothættir og með litla matarlyst, hreyfa sig lítið eða eru veikir, þurfa oft að fá D-vítamín og kalk í töfluformi samkvæmt læknisráði. Konur ættu að taka inn kalk og D-vítamín á meðgöngunni og á meðan brjóstagjöf stendur.  Svo á og við og alla þá sem stríða við heilsufarsvandkvæði, s.s. vegna starfssemi lifrar eða nýrna, sem síðan hefur áhrif á efnaskipti D-vítamíns.

Sjúklingar sem greindir hafa verið með beinþynningu og fara í lyfjameðferð fá einnig kalk og D-vítamín til að áhrif meðferðarinnar verði sem mest. Hins vegar er ávallt best að ráðfæra sig við lækni því sams konar meðferð hentar ekki öllum.

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur