Á vef alþjóða beinverndarsamtakanna IOF er að finna kalkreikni og með aðstoð hans er hægt að reikna út kalkmagnið sem við fáum úr fæðunni.
Færðu nóg af kalki? Steinefnið kalk er mikilvægt til að byggja upp og viðhalda heilbrigðum beinum allt lífið. Finndu út hvort þú fáir nóg af kalki í daglegri fæðu þinni með því að nota kalkreikninn
Hér á landi er hægt að nálgast upplýsingar um ráðlagða dagskammta af kalki og D-vítamíni á vef Lýðheilsustöðvar en þessar ráðleggingar eru eitthvað mismunandi eftir löndum.