Fram kemur á vef Landlæknisembættisins að klínískar leiðbeiningar (clinical guidelines) eru leiðbeiningar (ekki fyrirmæli) um verklag, unnar á kerfisbundinn hátt, til stuðnings starfsfólki í heilbrigðisþjónustu og almenningi við ákvarðanatöku við tilteknar aðstæður.
Þær taka mið af bestu þekkingu á hverjum tíma og eru lagðar fram í því skyni að veita sem besta meðferð með sem minnstri áhættu án óhóflegs kostnaðar.
Á vef embættisins er að finna m.a. klínískar leiðbeiningar um beinþynningu almennt og um beinþynningu af völdum sykurstera.
Á vef alþjóða beinverndarsamtakanna International Osteoporosis Foundation IOF er einnig að finna klínískar leiðbeiningar um beinþynningu í ýmsum löndum sem vert að kynna sér.