• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 09/05/2025

Mjaðmarbrotin eru alvarlegust

by tfadmin / Laugardagur, 22 september 2012 / Published in Aðalsteinn Guðmundsson, Greinar / Pistlar

– grein frá Landlæknisembættinu.

Landlæknisembættið hefur nýlega gert leiðbeiningar fyrir fagfólk um greiningu og meðferð beinþynningar.

Beinþynning einkennist af minnkuðum beinmassa ásamt röskun á eðlilegri beinuppbyggingu. Þegar talað er um beinþynningarbrot er átt við beinbrot sem verður af völdum áverka sem nægir ekki til að brjóta heilbrigt bein.

Áætlað er að rekja megi 1000–1200 beinbrot á Íslandi til beinþynningar og eru úlnliðsbrot og samfallsbrot í hrygg algengust en mjaðmarbrot, sem eru alvarlegust, eru um 200 árlega og mun þeim að óbreyttu fjölga verulega með hlutfallslegri öldrun þjóðarinnar. Færni og lífsgæði margra minnka verulega í kjölfar beinbrota með aukinni þörf á aðstoð og eru þá ótaldar aðrar afleiðingar eins og verri heilsa og verkir.

Beinþynning er einkennalaus þangað til bein brotnar. Þess vegna er mikilvægt að finna þá einstaklinga sem eru í mestri áhættu svo hægt sé að beita forvörnum og meðferð. Hætta á frekari brotum er mest hjá einstaklingum sem hafa hlotið eitt eða fleiri brot við lítinn áverka.

Áhættuþættir fyrir brot

Óbreytanlegir áhættuþættir:

  • Hækkandi aldur
  • Ættarsaga um beinþynningu (foreldrar)
  • Kyn (konur eru í meiri áhættu en karlar)
  • Hvítur kynstofn
  • Ótímabær tíðahvörf

 

Helstu áhættuþættir sem hægt er að hafa áhrif á:

  • Grannt holdafar
  • Kalk- og/eða D-vítamínskortur
  • Reykingar
  • Hreyfingaleysi
  • Lækkuð beinþéttni við beinþéttnimælingu

Greining

Besta leiðin til að greina beinþynningu er svonefnd DEXA-aðferð sem mælir beinþéttni. Helstu kostir DEXA eru stuttur rannsóknartími, nákvæmni og lítil geislun. Í leiðbeiningunum er ekki sérstaklega er mælt með ómskoðun af hæl til að greina beinþynningu né til að fylgjast með árangri meðferðar. Þó getur mælingin komið að gagni til að staðfesta góðan beinhag hjá eldri konum.

Hvenær á að mæla beinþéttni?

  1. Áhættuþættir beinþynningar til staðar.
  2. Beinbrot við lítinn áverka eða þegar röntgenmynd vekur grun um beinþynningu.
  3. Sjúklingar sem settir eru á sykursterameðferð.
  4. Þegar meta þarf árangur meðferðar á beinþynningu.

Forvarnir

Hollt mataræði með nægilegu D-vítamíni og kalki. Hreyfing til að styrkja bein og styrkjandi æfingar og jafnvægisþjálfun til að forða byltum. Þeir sem reykja ættu að hætta því. Nánari grein verður gerð fyrir forvörnum byltna síðar.

Ítarlegri upplýsingar má finna á vef Landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is , og Beinverndar, www.beinvernd.net .

Aðalsteinn Guðmundsson,læknir

Anna Björg Aradóttir, hjúkrunarfræðingur

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur