Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) hefur fest kaup á nýjum beinþéttnimæli af gerðinni Hologic Discovery. Mælirinn kostar um 10 milljónir og er keyptur fyrir styrktarfé frá velunnurum FSA, en þeir eru Saga Capital, Norvík hf., Margeir Steingrímsson, sex stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu, Lionsklúbburinn Hængur og fleiri aðilar. Vilja forsvarsmenn Sjúkrahússins á Akureyri og yfirmenn myndgreiningardeildar sjúkrahússins færa þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Beinþéttnimælingar hófust árið 1997 á FSA þegar keyptur var 5 ára gamall beinþéttnimælir frá Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Til dagsins í dag hafa verið framkvæmdar um 6500 beinþéttnimælingar, en jafnframt er gefin ítarleg sérfræðiráðgjöf um beinvernd um hverja mælingu.
Beinþéttnimælirinn sem nú er tekinn í notkun styttir m.a. rannsóknartíma hverrar mælingar um helming og þannig verða afköst betri og rannsóknin enn auðveldari fyrir þann sem gengst undir beinþéttnimælingu. Öll úrvinnsla fer nú fram með stafrænum hætti sem gefur möguleika á að sækja eftir sérfræðiþekkingu um beinþynningu út fyrir FSA, en úrlestur gagna fer fram í Reykjavík og er jafnan lokið samdægurs með ítarlegri sérfræðingsráðgjöf. Eldri mælir var í bráðabirgðahúsnæði en nýja mælinum hefur verið komið fyrir í vel innréttu framtíðarhúsnæði á myndgreiningardeild FSA á svo kallaðri „kvenna-einingu“. Hafa ber þó í huga að karlar þurfa einnig á að halda beinþéttnimælingum.
Beinþéttnimælir af þeirri gerð sem nú er tekinn í notkun mælir m.a. beinmassa í hrygg og mjöðm, en gefur einnig kost á beinþéttnimælingum í öllum beinum líkamans ef þörf þykir. Mælirinn getur einnig framkvæmt magnmælingu á fitu og vöðvamassa, sem hjálpar við eftirlit á ýmsum sjúkdómum, s.s. átröskun. Að auki er hægt að leggja nákvæmt stafrænt mat á stærð og fjölda samfallsbrota í hryggjarliðbolum.
Beinþéttnimæling kostar í dag 2000.-kr. fyrir almenning (lægra gjald er fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja). Eins og við Landspítala-háskólasjúkrahús, geta konur eldri en fertugar og karlar eldri en 55 ára pantað rannsókn í forvarnarskyni án tilvísunar frá lækni. Á FSA skal hafa samband við móttöku myndgreiningardeildar í síma 463-0251. Myndgreiningardeild áréttar þó að til að tryggja bestu sérfræðiráðgjöfina er æskilegt að beinþéttnimælingar séu gerðar í samvinnu við heilsugæslu og sérgreinalækna. Beinþéttnimælingar eru í boði á um 2ja vikna fresti alla vetrarmánuði ársins. Með þessum nýja beinþéttnimæli styrkir FSA enn frekari þjónustu við íbúa á Norðausturlandi.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar má finna á heimasíðu Beinverndar (www.beinvernd.net).