Nýverið kom út mynddiskur með leikfimiæfingum fyrir fólk á best aldri með yfirskriftinni Sterk og létt í lund. Það eru íþróttafræðingarnir Ásdís Halldórsdóttir og Steinunn Leifsdóttir sem standa að útgáfunni. Á disknum er að finna góðar og velútfærðar æfingar við allra hæfi. Beinvernd mælir með þessum mynddiski fyrir alla en þó sérstaklega eldra fólk. Góð heilsa er það dýrmætasta sem við eigum og hreyfing er ein leið til að stuðla að bættri heilsu. Mynddiskurinn fæst í Hagkaup og Eymundsson. Beinvernd styrkti útgáfuna ásamt fleiri aðlinum.