Alþjóðlegt beinaþing IOF sem áætlað er að halda í Bangkok á Tælandi 3.-7. desember n.k. er í uppnámi vegna óstöðugs stjórnmálaástands í landinu.
Stjórn Beinverndar er ekki kunnugt um ferðir Íslendinga á þingið en viðvörun frá IOF er að finna hér.
Ekki er búið að slá þingið af en IOF mun gefa út endanlega ákvörðun varðandi þingið á föstudaginn 28. nóvember kl. 16:00.
Vinnufundir nefnda IOF eru einnig í uppnámi og verður ákvörðum um þá einnig tekin á föstudaginn 28. nóvember.