Beinvernd þakkar þeim aðilum sem hlupu fyrir Beinvernd í Reykjavíkurmaraþoninu. Það skiptir félagið miklu máli að fá stuðning og hlaup og skokk eru einnig styrkjandi fyrir beinin.
Beinvernd minnir á Styrktarsjóð sinn en honum er ætlað að styrkja rannsóknir um beinþynningu.
Fyrirtæki geta fengið fræðslufyrirlestur um beinþynningu og forvarnir hjá Beinvernd og beinþéttnimælingu með ómskoðunartæki gegn vægu gjaldi.