• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 20/05/2025

Saga Capital Fjárfestingarbanki styrkir FSA til kaupa á beinþéttnimæli

by tfadmin / Miðvikudagur, 26 september 2007 / Published in Fréttir
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, afhendir Halldóri Jónssyni, forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri styrk til kaupa á beinþéttnimæli. Styrkurinn er afhentur á myndgreiningardeild sjúkrahússins þar sem mælirinn verður staðsettur. Með á myndinni eru frá vinstri, Þóra Ákadóttir, starfandi framkvæmdastjóri hjúkrunar; Örn Orri Einarsson, forstöðulæknir myndgreiningardeildar; Elvar Örn Birgisson, forstöðugeislafræðingur; Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga; Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármála og reksturs Sjúkrahúsins á Akureyri.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, afhendir Halldóri Jónssyni, forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri styrk til kaupa á beinþéttnimæli. Styrkurinn er afhentur á myndgreiningardeild sjúkrahússins þar sem mælirinn verður staðsettur. Með á myndinni eru frá vinstri, Þóra Ákadóttir, starfandi framkvæmdastjóri hjúkrunar; Örn Orri Einarsson, forstöðulæknir myndgreiningardeildar; Elvar Örn Birgisson, forstöðugeislafræðingur; Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga; Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármála og reksturs Sjúkrahúsins á Akureyri.

Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur ákveðið að styrkja Sjúkrahúsið á Akureyri til kaupa á fullkomnum beinþéttnimæli. Eldri beinþéttnimælir sjúkrahússins, sem hefur í nær áratug þjónað Norðlendingum, er nú óstarfhæfur vegna bilana. Því hefur orðið að senda fjölmarga til Reykjavíkur til rannsóknar á beinþynningu. Þörfin er brýn fyrir þjónustu heima í héraði, því árlega má áætla að 1200-1400 beinbrot megi rekja til beinþynningar á Íslandi.

Í haust hratt Sjúkrahúsið á Akureyri í samvinnu við Beinvernd af stað fjáröflunarherferð til söfnunar á nýjum beinþéttnimæli af fullkomnustu gerð en áætlaður kostnaður er um 10 milljónir króna. Í dag afhenti Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Halldóri Jónssyni, forstjóra Sjúkrahússins, styrk upp á tvær milljónir króna til styrktar þessu málefni.

Halldór segir að þessi styrkur geri það að verkum að sjúkrahúsið geti nú pantað nýjan beinþéttnimæli. ,,Í ljósi þess að önnur hver fimmtug kona og þriðji hver fimmtugur karl geti átt von á því að verða fyrir beinbroti vegna beinþynningar er mælir sem þessi mikilvægur fyrir FSA og Norðlendinga. Ætla má að allt að 700 einstaklingar komi árlega til með að nýta sér þessa þjónustu hér á FSA.”

Dr. Björn Guðbjörnsson, dósent í gigtarrannsóknum og formaður Beinverndar, fagnar framtakinu og segir að beinþynning sé bæði dulin, hættulegur og kostnaðarsamur sjúkdómur og ef ekkert er að gert má segja að beinþynning sé faraldur út frá lýðheilsu séð. Hann nefnir sem dæmi að allt að 250 konur mjaðmabrotni vegna beinþynningar á hverju ári hér á landi og þá séu ótalin önnur brot, þar á meðal að minnsta kosti 400 samfallsbrot á hrygg, sem hafa umtalsverð áhrif á lífsgæði kvenna. ,,Með tímanlegri greiningu á beinþynningu má hins vegar helminga brotaáhættuna og beinþéttnimælar, eins og sá sem nú er fyrirhugað að setja upp á FSA, skipta þar sköpum,” segir Björn.

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur