Alþjóðlegu beinverndarsamtökin IOF standa að baki nýju fræðsluefni sem byggir á sérhönnuðum dansæfingum. Fræðsluefninu var ýtt úr vör á beinverndardaginn þann 20. októbert sl. og er styrkt af Daiichi Sankyo Europe. Markmiðið er að hvetja fólk sem er með beinþynningu að nota samkvæmisdansa til þess að styrkja beinin og hægja á beintapi.
Í fréttatilkynningu sem gefin var út af þessu tilefni segir prófessor Juliet Compston, stjórnarmaður í IOF og prófessor í beinalækningum í Háskólanum í Cambridge: “Líkamsþjálfun er eitt af því mikilvægasta sem fólk með beinþynningu getur gert til þess að hjálpa sér sjálft. Auk þess er dansinn bæði skemmtilegur og áhrifarík líkamsrækt. Dansinn þjálfar allan líkamann – liðamót, vöðva og mikilvægast af öllu: styrkir beinin.”
Hvatinn að þessu verkefni kemur frá hinu alþjóðlega sjónvarpsefni
“Strictly Come Dancing”, sem sýnt var samtímis í mörgum löndum Evrópu. Breski atvinnudansarinn Erin Boag vann að þessu dansverkefni með prófessor Compston. Þau þróuðu æfingar, sem eiga að vera hættulausar og auðvelt að fylgja eftir. Æfingarnar byggja á dönsunum valsi, kvikksteppi og rúmbu.
Fræðsluefnið er á ensku, en verður fyrst um sinn einungis fáanlegt með fönskum, þýskum, ítölskum, spænskum og tyrkneskum texta. Beinvernd mun kanna með hvaða hætti íslenskir sjúklingar geti nálgast efnið.