Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 7. júní á 90 stöðum hér á landi og 20 stöðum erlendis.
Í ár er yfirskrift hlaupsins “Heilbrigt hugafar, hraustar konur” að tilefni samstarfs ÍSÍ við Lýðheilsustöð. Markmið samstarfsins er að hvetja konur til að fagna því að þær eru eins ólíkar og þær eru margar og njóta þess fjölþætta ávinnings sem fylgir heilbrigðum lífsháttum svo sem jákvæðu hugarfari, daglegri hreyfingu og hollum matarvenjum. Að sama skapi ætti að varast að meta sig út frá staðalímyndum t.d. um útlit, þyngd eða fatastærð.
Kvennahlaup ÍSÍ er útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert. Um 15.000 þúsund konur taka þátt á um 90 stöðum hérlendis og á 20 stöðum erlendis t.d verður kvennahlaup í Búlgaríu, Færeyjum, Mexico, Danmörku, Þýskalandi, Ástralíu, Finnlandi, Kanada, Noregi, Lúxemburg, Frakklandi og USA.
Léttur leikur er í gangi á sjova.is. Það eina sem þarf að gera er að senda inn myndskeið á sjova.is og þú getur unnið dekurdag í nýja Blue Lagoon Spa-inu, fyrir allt að 8 manns. Mjög einfalt er að senda inn myndir og starfsfólk Sjóvá veitir alla mögulega aðstoð ef fólk skyldi lenda í vandræðum með að koma myndskeiðum til okkar.
Fjölbreytt dagskrá verður um allt land á hlaupastöðunum en í Garðabæ hefst dagskrá kl: 13:30 þar sem Hara systur munu skemmta og hlaupið verður ræst kl. 14:00. Í Mosfellsbæ og á Akureyri hefst hlaupið kl: 11:00.
Allar upplýsingar um hlaupastaði og forsölu á bolum er að finna á sjova.is
Með kveðju
f.h. Kvennahlaupsnefndar ÍSÍ
Jóna Hildur Bjarnadóttir
S: 514-4000 eða [email protected]