Vissir þú að …..
Um 75 milljónir manns eru með beinþynningu í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan.
1/3 kvenna yfir 50 munu brotna af völdum beinþynningar og 1/5 karla.
85% allra framhandleggsbrota verða hjá konum.
Meðal kvenna af hvítum kynstofni er áhætta á mjaðmarbroti 1 af hverjum 6 en til samanburðar er áhættan á að greinast með brjóstakrabbamein 1 af 9.
Legudagar kvenna eldri en 45 á sjúkrahúsi vegna afleiðinga beinþynningar eru fleiri en vegna annarra sjúkdóma, þ.m.t. sykursýki, hjartasjúkdómar og brjóstakrabbamein.