800 g ýsuflök
3 egg
1/2 dl rjómi
1/4 tsk paprikuduft
100 g pizzaostur
Salt og nýmulinn svartur pipar
1 msk smjör
1 msk olía
Aðferð:
Skerið ýsuna í bita
Hrærið saman eggjum, rjóma, paprikudufti, salti og pipar
Veltið ýsunni upp úr eggjablöndunni og steikið á báðum hliðum á pönnunni í smjörinu og olíunni
Setjið ýsuna í eldfast mót og hellið restinni af eggjablöndunni yfir.
Stráið pizzaostinum yfir fiskinn og eggjablönduna og bakið við 180°C í u.þ.b. 12-14 mínútur
Berið fram með kartöflum og paprikusalsa.
Paprikusalsa
1 rauð paprika
1 gul paprika
1 græn paprika
1 stk paprikuostur
1/2 dl saxaður blaðlaukur
2 msk ólífuolía
Salt og nýmulinn pipar
Aðferð:
Skerið paprikuna og ostinn í teninga, blandið öllu saman og hrærið vel.