• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 09/05/2025

Þrjár auðveldar æfingar fyrir beinin.

by tfadmin / Mánudagur, 24 janúar 2011 / Published in Fréttir

Styrkjandi æfingar geta dregið úr líkum á beinbrotum og þær þurfa ekki að vera flóknar.

Styrkjandi æfing fyrir úlnliði

Framhandleggsbrot (við úlnlið) er eitt algengasta beinbrotið af völdum beinþynningar. Oftast verður slíkt brot vegna byltu þar sem lent er á hendinni með þeim afleiðingum að hún brotnar. 

Æfing sem styrkir vöðva í kringum úlnliðinn: Haldið á einhverju t.d. handlóði, niðursuðudós,blautum þvottapoka eða einhverju tiltæku. Látið handabakið snúa upp. beygið úlnliðinn upp með því að að ýta handarbakinu eins vel upp og aftur og þið getið og svo rólega til baka. Endurtaka æfinguna 10-20 sinnum með hvorri hendi. Breytið síðan æfingunni og snúið úlnliðunum í hringi (haldið áfram á þyngdinni) 10 – 20 sinnum í hvora átt. Slakið síðan á og hristið hendur og handleggi vel.

Styrkjandi æfing fyrir úlnliði

Styrkjandi æfing fyrir úlnliði

Styrkjandi æfing fyrir bakið

Rannsóknir hafa sýnt að æfingar sem styrkja bakvöðva minnka líkur á samfallsbrotum í hrygg. Mikilvægt er að styrkja vöðvana sem rétta úr bakinu, réttivöðva baksins (extensors).

Styrkjandi æfingar fyrir réttivöðva baksins:
Liggið á grúfu (gott að hafa púða undir kviðnum) og horfið bein niður, hendur niður með hliðum. Lyftið brjóstinu upp frá gólfi, teljið 1-2-3 og sígið rólega til baka. Byrjið á því að gera æfinguna einu sinni á dag og fjölgið svo endurtekningunum þar til þið getið gert æfinguna 20 sinnum. Mikilvægt að fara rólega af stað. Síðan er hægt að bæta við þyngd með því að setja sandpoka eða bók á bakið þannið að það verði erfiðara að lyfta brjóstinu upp frá gólfi.

Styrkjandi æfing fyrir bakið

Styrkjandi æfing fyrir bakið

Fyrir mjaðmirnar

Flest mjaðmarbrot verða vegna byltna. Gott jafnvægi er því mikilvægt til að draga úr líkum á byltum og brotum. Góður styrkum í fótleggjum er einnig nauðsynlegur.

Æfing sem styrkir neðri hluta líkamans og eykur jafnvægið. Standið bein með hendur á mjöðmum og sparkið fótunum fram til skiptis með ökklana kreppta (áhersla á að sparka hælnum fram). Ef þið eruð óstöðug þá styðjið ykkur við stólbak eða vegg. Endurtakið 10 sinnum á hvorn fót og aukið síðan við smátt og smátt þar til þið getið gert 20 sinnum á hvorn fót.  

Gott er að byrja og enda æfinglotuna á því að ganga á staðnum og stappa ákveðið niður fæti í hverju skerfi. Gangið þannig í u.þ.b. eina mínútu og örvið þannig beinin og styrkið þau.

Fyrir mjaðmirnar

Fyrir mjaðmirnar

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur