Hinn alþjóðlegi beinverndardagur er haldinn þann 20. október um allan heim. Á hverju ári er ákveðið þema og vinna beinverndarfélögin að því að vekja athygli á beinþynningu með áherslu á ákveðnum þáttum er henni tengjast. Í ár er þemað ‘Capture the Fracture’.
Undirbúningur beinverndardagsins er þegar hafinn og stefnt er að því að gefa út fréttabréf í tilefni dagsins líkt og undanfarin ár auk þess að ‘GANGA FYRIR BEININ’. Nánar verður greint frá viðburðum í tengslum við beinverndardaginn þegar nær dregur.