• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 07/06/2025

Viðtal við Margréti Láru Viðarsdóttur

by tfadmin / Þriðjudagur, 06 janúar 2009 / Published in Fréttir

Margrét Lára Viðarsdóttir er fædd í Vestmanna eyjum 25. júlí 1986.  Hún hóf ung að stunda íþróttir, aðeins 6 ára gömul, og lék knattspyrnu með Tý og ÍBV í Eyjum.  Þaðan gekk hún til liðs við Val og síðar fór hún til Þýskalands og lék með Duisburg.  Í dag leikur hún knattspyrnu í Svíþjóð, þar sem hún lék fyrst með Linköping og er nú leikmaður Kristianstad.  Margrét Lára var aðeins 16 ára, þegar hún lék sinn fyrsta A- landsleik og hefur nú, 23ja ára gömul, leikið 58 landsleiki og gert  51 mark undir merki Íslands.

Á bak við slíkan árangur hljóta að búa viðhorf, bæði til líkama og sálar, sem forvitnilegt væri að kynnast.   Margrét Lára brást góðfúslega við því að svara nokkrum spurningum fyrir lesendur Beinverndar:

 „Að lifa heilbrigðu og góðu lífi“
Ég reyni að lifa heilbrigðu og góðu lífi. Líkami minn er mitt atvinnutæki eins og stendur og því þarf ég að hugsa vel um að hvíla mig, borða rétt og æfa ötullega.  Síðan skiptir miklu máli að láta sér líða vel og vera umkringd góðu fólk sem styður mann.  Foreldrar mínir höfðu mikil áhrif á mig og ég á vini sem ég lít mikið upp til.  Það er margt frábært fólk í kringum mig sem hefur hjálpað mér mikið til þess að ná þeim árangri sem ég hef náð.

„Ég hef alltaf trú á að ég vinni og nái settu marki“

Til þess að ná langt þarf fyrst og fremst að trúa því að allt sé hægt.  Þótt hundrað veggir séu á leiðinni verður bara finna leiðir framhjá þeim en ekki snúa við.  Það er mikil vinna að ná árangri og margar fórnir sem maður verður  að vera tilbúin til þess að færa.  Allt er það þess virði þegar maður loks nær sínum markmiðum.  Ég er að gera það sem mér finnst skemmtilegast, og  þaðskiptir mig miklu máli.  Mér finnst forréttindi að geta æft og spilað fótbolta alla daga. Ég hef eignast marga af mínum bestu vinum í gegnum minn fótboltaferil, og það er eitthvað sem maður á eftir að búa að alla sína ævi.  En á bak við allt þetta er löngun mín til þess að ná árangri.  Ég set mér háleit markmið og geri allt til þess að ná þeim.  Keppnisskap og metnaður drífur mig áfram.  Ég vil aldrei gefast upp og hef alltaf trú á að ég vinni og nái settu marki.

 

„Líkaminn er vél sem þarf að ganga“

Ég hef alltaf hugsað mikið um mataræði mitt.  Líkaminn er vél sem þarf að ganga og því er mikilvægt að setja rétta orku á hana.  Það er allt í lagi að leyfa sér einstaka sinnum örlitla óhollustu en meginreglan á að vera sú að borða fjölbreytta og góða fæðu.   Ég tek reglulega inn sportþrennu sem inniheldur meðal annars lýsistöflur.

 

Að lokumráð til ungra íþróttaiðkenda:

Það skiptir ekki máli hvað maður heitir eða hvaðan maður kemur.  Allt er hægt ef þú ert tilbúin að leggja nægjanlega mikið á þig.  Mikilvægt er að hafa trú á sjálfum sér, setja markið hátt, æfa vel og hugsa vel um sig.

Margrét Lára Viðarsdóttir

Margrét Lára Viðarsdóttir

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur