Snorri Steinn Guðjónsson er fæddur í Reykjavík þann 17. október árið 1981. Hann byrjaði að æfa bæði handbolta og fótbolta 6 ára gamall og æfði og lék með Val á Hlíðarenda. Frá Val lá leiðin síðar til meginlands Evrópu þar sem Snorri hefur leikið í Þýskalandi með liðunum Grosswallstad, Minden, GOG og leikur nú sem stendur með liði Rein Neckar Löwen. Snorri Steinn lék sinn fyrsta landsleik gegn Norðmönnum í október 2001 og á nú að baki fjölmarga landsleiki og aragrúa marka þar sem hæst ber 2. sæti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.
Snorri Steinn varð góðfúslega við þeirri beiðni að leyfa lesendum Beinverndar að skyggnast á bak við þennan glæsta feril hans sem íþróttamanns og kynnast þeim viðhorfum sem beint hafa honum svo langt sem raun ber vitni.
„Ég trúði á sjálfan mig og hafði viljann til þess að vinna“
Ég trúði á sjálfan mig og langaði að ná langt. Ég hafði sterkan vilja til þess að leggja það á mig sem til þarf til þess að fara alla leið og æfði mikið og helst meira en allir aðrir. Í erfiðum leikjum var viljinn til þess að vinna alltaf til staðar.
„Sterkustu áhrifin frá foreldrum“
Mamma og pabbi höfðu auðvitað mest áhrif á mig og ég fékk endalausan stuðning frá þeim þegar kom að boltanum. Þá höfðu allir þeir þjálfarar sem leiðbeindu mér hjá Val sterk áhrif á mig og kenndu mér alltaf eitthvað. Fyrir það er ég mjög þakklátur.
„Mataræði helst í hendur við árangur“
Á unglingsárum var ég e.t.v. ekki mjög meðvitaður um mataræði mitt. Vitund mín jókst
þó alltaf því eldri sem ég varð, kannski sem betur fer, því árangur í íþróttum helst alltaf í hendur við mataræði.
„Vináttan skiptir mestu máli“
Það skiptir allt máli í íþróttum, að vera í leik með öðrum, gera mörk og vinna. Samveran með öðrum hefur þó gefið mér mest og sú vinátta sem verður til þegar maður er hluti af góðum hópi. Allir mínir bestu vinir í dag eru úr boltanum þó að flestir þeirra séu nú hættir að stunda hann.
„Ráð til ungra íþróttaiðkenda“
Æfa mikið og meira en hinir, borða og sofa vel og standa sig í skólanum!