• Forsíða
  • Beinvernd
    • Um félagið
    • Persónuvernd
    • Saga / Markmið
    • Stjórn
    • Samstarfsaðilar
    • Minningarkort
    • Aðildarumsókn
  • Beinþynning
    • Greining
    • Meðferð
      • Meðferðarúrræði
      • Bífósfónöt
      • Helstu lyf
      • Estrógen
    • Áhættuþættir
    • Forvarnir
  • Fróðleikur
    • Fréttabréf / Útgáfa
    • Gagnabanki
    • Greinar og pistlar
    • Kalk og D-vítamín
    • Tenglar
    • Gott í gogginn
  • Áhættupróf
  • Beinráður
  • English
 09/05/2025

Viðtal við Snorra Stein Guðjónsson, leikstjórnanda íslenska handboltalandsliðisins

by tfadmin / Mánudagur, 24 janúar 2011 / Published in Fréttir

Viðtal við Snorra Stein Guðjónsson (birtist í fréttabréfi Beinverndar 2009)

Snorri Steinn Guðjónsson er fæddur í Reykjavík þann 17. október árið 1981. Hann byrjaði að æfa bæði handbolta og fótbolta 6 ára gamall og æfði og lék með Val á Hlíðarenda. Frá Val lá leiðin síðar til meginlands Evrópu þar sem Snorri hefur leikið í Þýskalandi með liðunum Grosswallstad, Minden, GOG og Rein Neckar Löwen. Snorri leikur nú með danska liðinu AG København. Snorri Steinn lék sinn fyrsta landsleik gegn Norðmönnum í október 2001 og á nú að baki fjölmarga landsleiki og aragrúa marka þar sem hæst ber 2. sæti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 og 3. sæti á Evrópumeistaramótinu 2010 í Austurríki.

Snorri Steinn varð góðfúslega við þeirri beiðni að leyfa lesendum Beinverndar að skyggnast á bak við þennan glæsta feril hans sem íþróttamanns og kynnast þeim viðhorfum sem beint hafa honum svo langt sem raun ber vitni.

„Ég trúði á sjálfan mig og hafði viljann til þess að vinna“

Ég trúði á sjálfan mig og langaði að ná langt.  Ég hafði sterkan vilja til þess að leggja það á mig sem til þarf til þess að fara alla leið og æfði mikið og helst meira en allir aðrir. Í erfiðum leikjum var viljinn til þess að vinna alltaf til staðar.

„Sterkustu áhrifin frá foreldrum“

Mamma og pabbi höfðu auðvitað mest áhrif á mig og ég fékk endalausan stuðning frá þeim þegar kom að boltanum.  Þá höfðu allir þeir þjálfarar sem leiðbeindu mér hjá Val sterk áhrif á mig og kenndu mér alltaf eitthvað.  Fyrir það er ég mjög þakklátur.

„Mataræði helst í hendur við árangur“
Á unglingsárum var ég e.t.v. ekki mjög meðvitaður um mataræði mitt. Vitund mín jókst

þó alltaf því eldri sem ég varð, kannski sem betur fer, því árangur í íþróttum helst alltaf í hendur við mataræði.

„Vináttan skiptir mestu máli“

Það skiptir allt máli í íþróttum, að vera í leik með öðrum, gera mörk og vinna.  Samveran með öðrum hefur þó gefið mér mest og sú vinátta sem verður til þegar maður er hluti af góðum hópi.  Allir mínir bestu vinir í dag eru úr boltanum þó að flestir þeirra séu nú hættir að stunda hann.

„Ráð til ungra íþróttaiðkenda“
Æfa mikið og meira en hinir, borða og sofa vel og standa sig í skólanum!

Beinvernd

Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna. Stofnandi Beinverndar er Ólafur Ólafsson, fv. landlæknir, formaður er Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir og verndari félagsins er Ingibjörg Pálmadóttir fv. heilbrigðisráðherra

Fróðleikur

Útgáfa
Greinar / Pistlar Tenglar
Gott í gogginn

Hafðu samband

Netfang: [email protected]
Heimilisfang: Háholt 14
270 Mosfellsbær
Ísland

Beinvernd. Öll réttindi áskilin.

TOP

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Ég samþykki Ég synja
Friðhelgisstillingar
Friðhelgisstillingar

Beinvernd notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Nauðsynlegar vafrakökur Tölfræðilegar vafrakökur Þjónustuborð Persónuvernd Vafrakökustefna
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á beinvernd.net
  • CookieConsent

Þessar vafrakökur safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun á vefnum.

Google Analytics
Við söfnum nafnlausum upplýsingum um notkun til að bæta heimasíðuna og þjónustuna.
  • _ga
  • _gid
  • _gat

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur