600 – 800 g ýsa
3 msk heilhveiti
50 g smjör
1 stk epli
1 stk laukur, meðalstór
salt og svartur pipar
Sósa:
1 dós kotasæl með ananas
1 dl matreiðslurjómi
200 g grísk jógúrt
1 bréf 50 g cocnut curry spice paste (asian home gourmet)
1 msk maisenamjöl
Aðferð:
Steikið fiskinn á pönnu, bætið við lauk og eplum. Hrærið saman innihaldi sósunnar.
Hellið blöndunni yfir fiskinn og látið sjóða við vægan hita í 4-6 mínútur.
Borið fram með hrísgrjónum og góðu salati